Jólaflandur

nyarsblog 1

Í síðustu ferð fórum við til Twyfelfountain og skoðuðum steinaristur San fólksins. Hitinn var ekkert yfirþyrmandi, bara þægilegur.

Hér eru ferðafélagarnir ásamt leiðsögustúlku að slappa af. 

 

 

 

 

 

nyarsblog2

Strákarnir tóku sig vel út á meðal æfagamalla ristna. 

 

 

 

 

 

 

 

nyarsblog3 Við vorum tvær nætur í skálanum að Twyfelfountain (aldrei þessu vant!). Við höfðum því tíma til að skoða okkur aðeins um á svæðinu. Við fórum að skoða Burnt Mountain og pípuorgelið, sem er óskaplega fallegt stuðlaberg sem á nú vel við okkur Íslendingana. 

 

 

 

 

 

 

 

nyarsblog4 Nú er hásumar og þar að auki búið að rigna aðeins svo að skordýralífið er með því líflegasta. Þessi glæsilegi sporðdreki var á baðherbergisgólfinu okkar um morguninn. Davíð, sem hefur tröllatrú á eitri, spreyjaði hann vinstri og hægri. Næst þegar að var gáð var kvikindið þó ekki dautt, heldur farinn á flakk, og fannst hann undir handklæði sem lá á gólfinu.

Hann var sprelllifandi, og endaði sína sögu í klósettinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jiiihhhh Erla - þú lítur ekkert smá vel út.......vildi að ég væri hjá ykkur í sólinni núna ;o)

Ása Dóra (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband