Mætt til Windhoek

Við fjölskyldan lentum heilu og höldnu á mánudagsmorgun í Windhoek eftir þrjá góða daga í Þýskalandi. Héðan er það helst að frétta að teknir voru nefkirtlarnir og rör sett í eyrun á Óskari í morgun. Sáum háls- nef- og eyrnalækni í gær og svo héldum við á spítalann í bítið í morgun og þessu bara skellt í. Höfðum einnig hitt lækni á Íslandi sem vildi gjarnan gera aðgerðina sem allra fyrst, en allar skurðstofur lokaðar þar, svo þess var ekki kostur. Hann var orðinn vita heyrnarlaus, barnið og vökvinn í eyrunum orðin einhver límdrulla, nefkirtlarnir massífir (nota orð læknisins), svo að það var gott að ljúka þessu af sem fyrst.

Læknirinn var mjög traustvekjandi en spítalinn var frekar skrautlegur, svo við vorum fegin að komast með barnið heim aftur. Annars erum við bara í góðum málum, húsið var hrollkalt, en nú er að fara að hitna aftur, svo að það stendur til bóta. Halli og vinur hans Eric búnir að vera límdir saman frá heimkomu og litlu guttarnir ætla að heimsækja gamla leikskólann sinn einhvern daginn.

Veran á Íslandi var dásamleg, þar var hlaupið á fjöll og samveru notið með fjölskyldu og vinum. Íslenska sumarið og íslenska náttúran er náttúrulega einstök, svo að það var gott að koma heim og hlaða batteríin. Ofgnótt af brauðsúpu, sviðasultu og harðfiski ætti að duga manni næsta árið eða svo. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir frábærar stundir á Íslandi. Það var unaðslegt að hafa ykkur hér sumarlangt. Orri talar svolítið um Stefán Orra enda áttu þér sérlega góðar stundir í Kjósinni um daginn.

 Gott að vita að þið hafið komist heil heim. Ég geri ráð fyrir að það hafi verið gott vera á hóteli að bíða eftir næsta flugi en ekki á einhverjum slímugum flugvelli. 

 Gleymdi að segja ykkur að boðskortið til ykkar í brúðkaupið kom til okkar á mánudegi eftir brúðkaup. Við lifðum í góðri trú á að þið hefðuð fengið það út. 

 Ástarkveðjur

Harpa skarpa 

Frú Harpa (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 08:33

2 identicon

Takk fyrir síðast, ég er svooooo glöð fyrir að hafa náð að hitta ykkur og Hreinsa í sumar - alltaf gaman! 

Vona að stráksi nái sér fljótt og vel og rörin virki,

bestu kveðjur!

Siva (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband